Frétt

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Vextir óverðtryggðra lána, sem eru fastir til þriggja ára í senn, lækka úr 8,76% í 8,41% og tekur vaxtabreytingin gildi miðvikudaginn 26. febrúar nk.

Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:

  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 4,67%
  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 4,41%
  • Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 8,41%

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.