Frétt
Skattlagning lífeyrisgreiðslna
07. janúar 2025Skylt er að greiða tekjuskatt af lífeyrisgreiðslum eins og öðrum tekjum. Gagnlegt er fyrir sjóðfélaga að þeir séu upplýstir um skattþrepin sem nú eru þrjú svo tryggja megi rétta skattlagningu og forðast skattskuld við álagningu næsta ár.
Sjóðfélögum er ráðlagt að upplýsa sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattlagning lífeyrisgreiðsla skuli hefjast þegar sótt er um útgreiðslu eða ef breytingar eiga sér stað.
Persónuafsláttur og þrepamörk hafa nú hækkað um 5,80% á milli ára en skattprósentur hafa hækkað um 0,01 prósentustig.
Staðgreiðsluhlutfall vegna ársins 2025
Skattþrep | Tekjubil | Staðgreiðsluprósenta |
1. þrep | Af tekjum 0 - 472.005 kr. | 31,49% |
2. þrep | Af tekjum 472.006 - 1.325.127 kr. | 37,99% |
3. þrep | Af tekjum yfir 1.325.127 kr. | 46,29% |
Persónuafsláttur 2025
Vilji sjóðfélagi nýta persónuafslátt ber honum að upplýsa sjóðinn um það. Fullur persónuafsláttur er 68.691 kr. á mánuði vegna ársins 2025.
Skattleysismörk 2025
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna eru 218.136 kr. á mánuði miðað við 100% nýtingu persónuafsláttar.