Frétt

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2025

Áherslur fjárfestingarstefnu Frjálsa 2025

Stjórn Frjálsa hefur mótað fjárfestingarstefnu fyrir árið 2025 og er hana að finna hér. Síðustu ár hefur áhersla verið lögð á að auka hlutfall og dreifingu erlendra eigna. Samhliða hefur verið dregið úr vægi innlendra eigna. Í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2025 er haldið áfram á þessari vegferð.

Tryggingadeild

Fjárfestingarstefna tryggingadeildar hefur verið heldur aðhaldssöm í gegnum árin með það að markmiði að lágmarka sveiflur í ávöxtun og líkur á að skerða þurfi réttindi sjóðfélaga. Við mótun stefnu tryggingadeildar hefur jafnframt verið litið til þess að skylduiðgjöldum sjóðfélaga er skipt í tryggingadeild og séreignadeild og geta sjóðfélagar sjálfir valið sér fjárfestingarleið og þar með áhættustig þess hluta iðgjaldsins sem rennur í séreign. Breytingar á stefnunni í ár eru gerðar til þess halda áfram á vegferð síðustu ára að auka við erlendar fjárfestingar. Markmið um hlutfall eignaflokka hjá tryggingadeild breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf og innlán lækka úr 48% í 46%
  • Erlend skuldabréf lækka úr 5% í 4%
  • Erlend hlutabréf hækka úr 25% í 28%

Frjálsi áhætta

Undanfarin ár hefur fjárfestingarleiðin Frjálsi áhætta stækkað töluvert. Jafnframt hefur verið skerpt nokkuð á áhættu leiðarinnar til að aðgreina hana frekar frá öðrum fjárfestingarleiðum sjóðsins. Fjárfestingu í hlutabréfum og hlutabréfatengdum afurðum fylgir almennt meiri sveiflur í ávöxtun en í skuldabréfum. Að sama skapi er vænt langtímaávöxtun þeirra hærri.

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Frjálsa áhættu eru eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf og innlán óbreytt í 22%
  • Innlend hlutabréf hækka úr 21% í 23%
  • Innlendar sérhæfðar fjárfestingar lækka úr 7% í 4%
  • Erlend skuldabréf og innlán óbreytt í 1%
  • Erlend hlutabréf hækka úr 42% í 43%
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar óbreytt í 7%

Fjárfestingarleiðir ævilínu – Frjálsi 1, 2 og 3

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá fjárfestingarleiðum ævilínu breytast eins og hér segir:

  • Erlendar eignir
    • Frjálsa 1 hækkar úr 45% í 47%
    • Frjálsa 2 hækkar úr 25% í 27%
  • Innlend skuldabréf og innlán
    • Frjálsa 1 lækkar úr 36% í 34%
    • Frjálsa 2 lækkar úr 66% í 64%
  • Erlend skuldabréf og innlán
    • Frjálsa 1 lækkar úr 4% í 3%
  • Erlend hlutabréf
    • Frjálsa 1 hækkar úr 31% í 34%
    • Frjálsa 2 hækkar úr 16% í 18%.

Eignir í Frjálsa 3 eru einungis byggðar upp á innlendum skuldabréfum og innlánum. Í fjárfestingarstefnu 2025 eru helstu breytingar þær að vægi ríkisskuldabréfa hækkar úr 17% í 20%. Á móti er dregið úr vægi fasteignaveðtryggðra skuldabréfa úr 15% í 12%.

Á eftirfarandi mynd má sjá markmið um eignasamsetningu hverrar leiðar fyrir sig. Þó er heimilt að nýta vikmörk í fjárfestingarstefnu með því að undir- eða yfirvigta einstaka eignaflokka til að nýta tækifæri á mörkuðum og/eða til að draga úr áhættu.