Frétt
Skattfrjáls ráðstöfun á viðbótarsparnaði framlengd
03. desember 2024Almenna úrræðið til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst til íbúðakaupa og til að greiða inn á höfuðstól íbúðaláns hefur verið framlengt til og með 31. desember 2025.
Þeir sem eru með virka ráðstöfun inn á íbúðalán þurfa ekki að sækja um áframhaldandi nýtingu úrræðisins.
Þeir sem óska eftir því að hætta í úrræðinu þurfa að tilkynna það til Skattsins á leidretting.is.
Þeir sem eru ekki að nýta sér úrræðið en óska þess geta sótt um á leidretting.is.
Sjá nánari upplýsingar um úrræðið hér.
Vakin er athygli á því að úrræði vegna fyrstu íbúðar er óbreytt.