Frétt

Yfirlit hafa verið birt

Yfirlit hafa verið birt

Nú hafa yfirlit um iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga á tímabilinu 1. apríl 2023 til 8. október 2024 verið birt á Mínum síðum sjóðsins en þar má einnig sjá stöðu séreignar/réttinda m.v. 8. október 2024.

Við hvetjum sjóðfélaga til að fara vel yfir yfirlitin sín og ef iðgjöld vantar eða eru ekki í samræmi við launaseðla að hafa samband án tafar við launagreiðanda eða lífeyrisþjónustuna á frjalsi@frjalsi.is.

Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissparnað geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.

Yfirlit þeirra sem hafa óskað eftir að fá þau send í pósti munu berast á næstu dögum.

Við vekjum athygli á að sjóðfélagar Frjálsa geta fylgst með lífeyrissparnaði sínum í Arion appinu og framkvæmt allar helstu aðgerðir á einfaldan hátt. Þar er m.a. hægt að sækja hreyfingayfirlit til að fylgjast vel með hvort að iðgjöld hafi borist og séu rétt. Arion appið er opið öllum og ekki er nauðsynlegt að vera í bankaviðskiptum við Arion til að nýta sér kosti þess að hafa heildstæða sýn yfir lífeyrissparnaðinn sinn hjá Frjálsa í appinu.