Frétt
Fræðslufundur Frjálsa
14. febrúar 2024Fræðslufundi um Frjálsa lífeyrissjóðinn verður streymt á Facebook síðu Frjálsa þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12:00. Fundurinn er fyrir sjóðfélaga og aðra áhugasama um málefni sjóðsins.
Í pallborði verða Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion. Umræðum stýrir Eva Rós Birgisdóttir, sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion.
Umræðupunktar:
- Um skyldu- og viðbótarsparnað Frjálsa
- Þróun markaða og ávöxtun Frjálsa
- Þjónusta Frjálsa
- Frjálsi á samfélagsmiðlum
Fundurinn stendur yfir í um 20 mínútur.
Vakin er athygli á að einnig verður fræðslufundi streymt á ensku á Facebook síðu Frjálsa samdægurs kl. 12:30.