Frétt
Breytingar á vöxtum sjóðfélagalána
25. ágúst 2023Eftirfarandi breytingar verða á vöxtum sjóðfélagalána Frjálsa og taka þær gildi þriðjudaginn 29. ágúst nk.
- Óverðtryggðir vextir lána Frjálsa lækka úr 9,57% í 9,37%
- Fastir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 3,70% í 3,90%
Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:
- Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum: 3,05%
- Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann: 3,90%
- Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn: 9,37%
Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.