Frétt
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
01. apríl 2022Eftirfarandi breytingar verða á vöxtum lána Frjálsa og taka breytingarnar gildi mánudaginn 4. apríl nk.
- Vextir óverðtryggðra lána hækka úr 5,59% í 6,30%
- Vextir verðtryggðra lána með föstum vöxtum lækka úr 2,65% í 2,20%
Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:
- Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum, 1,40%
- Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann, 2,20%
- Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn, 6,30%
Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.