Frétt
Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
28. janúar 2022Vextir óverðtryggðra lána hækka úr 4,79% í 5,0% og tekur vaxtabreytingin gildi mánudaginn 31. janúar nk.
Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum, sem eru endurskoðaðir ársfjórðungslega, lækka úr 1,50% í 1,40% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. febrúar nk.
Eftir vaxtabreytinguna verða vextir lána Frjálsa eftirfarandi:
- Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum, 1,40%
- Verðtryggð lán með föstum vöxtum út lánstímann, 2,65%
- Óverðtryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára í senn, 5,0%
Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.