Frétt
Skattlagning lífeyrisgreiðslna
04. janúar 2022Greiddur er tekjuskattur af lífeyrisgreiðslum og öðrum tekjum. Til að tryggja rétta skattlagningu og forðast skattaskuld við álagningu næsta ár er mikilvægt að sjóðfélagi upplýsi sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattlagning lífeyrisgreiðslna hans skuli hefjast þegar sótt er um útgreiðslu, eða ef breytingar eiga sér stað.
Tekjuskattur er reiknaður í þremur skattþrepum.
Staðgreiðsluhlutfallið er eftirfarandi vegna ársins 2022
- Í skattþrepi 1 er 31,45% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur að 370.482 kr.
- Í skattþrepi 2 er 37,95% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur á bilinu 370.483 kr. - 1.040.106 kr.
- Í skattþrepi 3 er 46,25% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur frá 1.040.107 kr.
Persónuafsláttur 2022
Það er á ábyrgð lífeyrisþega að upplýsa sjóðinn um nýtingu persónuafsláttar en fullur persónuafsláttur er kr. 53.916 á mánuði vegna ársins 2022.
Skattleysismörk 2022
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna eru kr.171.434 á mánuði miðað við 100% skattkort.