Frétt
Niðurstöður ársfundar Frjálsa
11. júní 2021Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn í höfuðstöðvum Arion banka 11. júní sl. en sjóðfélagar gátu einnig fylgst með fundinum í gegnum beint streymi. Þetta var í fyrsta sinn sem boðið var upp á streymi frá ársfundinum.
Á fundinum var kynnt skýrsla stjórnar, ársreikningur sjóðsins, niðurstöður tryggingafræðilegrar athugunar og fjárfestingarstefna. Jafnframt voru breytingartillögur á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
Kosning stjórnarmanna
Sjálfkjörið var í aðalstjórn og varastjórn á fundinum.
Stjórnarmenn sem voru sjálfkjörnir í aðalstjórn til þriggja ára
- Ásdís Eva Hannesdóttir
- Magnús Pálmi Skúlason
Stjórnarmenn sem voru sjálfkjörnir í varastjórn
- Ingi Rafn Sigurðsson til þriggja ára
- Sigurður H. Ingimarsson til eins árs
Tillögur
Breytingartillögur stjórnar á samþykktum sjóðsins voru samþykktar nema tillögur 1.b., 1.e., 2.a. og 2.b. Stjórn sjóðsins dró tillögu 1.d. tilbaka á fundinum.
Tillaga stjórnar um stjórnarlaun var samþykkt
KPMG var endurkjörinn endurskoðandi sjóðsins.
Gögn ársfundar