Frétt
Úttekt á viðbótarsparnaði vegna COVID-19 heimil frá 1. apríl nk.
23. mars 2020Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá snýr hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19 að fyrirframgreiðslum viðbótarsparnaðar. Um er að ræða sambærilegt úrræði og var í gildi á árunum 2009-2014 og gildir eingöngu um frjálsa séreign úr viðbótarsparnaði.
- Heildargreiðsla að hámarki 12 milljónir kr. á einstakling, þó aldrei meira en uppsöfnuð inneign einstaklings þann 1. apríl 2020.
- Greitt í jöfnum mánaðarlegum greiðslum, 800.000 kr. á mánuði, að frádreginni staðgreiðslu tekjuskatts, á allt að 15 mánuðum frá umsókn.
- Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð er að ræða.
- Ef einstaklingur á viðbótarsparnað hjá fleiri en einum vörsluaðila skal gera grein fyrir því í umsókn, en 12 milljón kr. hámarkið gildir um alla vörsluaðila viðbótarsparnaðar samtals.
- Athugið að úrræðið gildir ekki um frjálsa séreign vegna skyldusparnaðar.
- Umsóknartímabil: 1. apríl 2020 til 31. desember 2020.
Vakin er athygli á að frumvarpið hefur enn ekki verið samþykkt svo að ofangreint gæti tekið einhverjum breytingum í meðferð þingsins. Undirbúningur er þegar hafinn og verða frekari upplýsingar um úrræðið birtar þegar þær liggja fyrir.