Frétt
Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
14. nóvember 2019Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar þriðjudaginn 19. nóvember kl. 17, í Borgartúni 19,105 Reykjavík.
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
- Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
- Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
- Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
- Mikilvægi þess að fólk á miðjum aldri hugi vel að söfnun lífeyrissparnaðar
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.