Frétt
Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
11. febrúar 2019Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17:30.
Á fundunum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
- Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
- Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
- Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
- Mikilvægi þess að fólk á miðjum aldri hugi vel að söfnun lífeyrissparnaðar
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.