Frétt
Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
08. október 2018Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni bjóðum við til opins fræðslufundar í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19.
Á fundinum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:
- Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
- Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
- Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 30. október kl. 16:30 og stendur yfir í rúmlega klukkustund.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.
Allir velkomnir.