Frétt

Sjóðfélagayfirlit

Sjóðfélagayfirlit

Yfirlit sjóðfélaga eru að berast í hús þessa dagana. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða. Sjóðurinn vekur athygli á að hægt er að nálgast yfirlitin rafrænt á Mínum síðum Frjálsa lífeyrissjóðsins með því að smella hér. Á Mínum síðum er einnig hægt að afþakka heimsend pappírsyfirlit.

Sjóðurinn hvetur sjóðfélaga til að athuga vel hvort iðgjaldagreiðslur á launaseðlum hafi skilað sér til sjóðsins. Vanti iðgjalda hreyfingar, hafðu þá endilega samband við launagreiðanda eða Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða í gegnum netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is.