Frétt

Breyting á breytilegum vöxtum verðtryggðra lána

Breyting á breytilegum vöxtum verðtryggðra lána

Breytilegir vextir á nýjum verðtryggðum sjóðfélagalánum Frjálsa lífeyrissjóðsins breytast frá og með 15. ágúst nk. Vextir grunnlána, sem miða við 65% veðhlutfall, lækka úr 3,47% í 3,32% og vextir viðbótarlána, sem miða við 65%-75% veðhlutfall, lækka úr 4,12% í 3,97%.

Lækkunin gildir einnig um þau verðtryggðu lán með breytilegum vöxtum sem þegar hafa verið tekin og kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.