Frétt
Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn
01. mars 2017Á fundinum segir Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, frá uppbyggingu, ávöxtun og lánareglum sjóðsins og þjónustu við sjóðfélaga.
Fjallað verður m.a. um þá þætti sem veita sjóðnum sérstöðu, s.s. séreignarmyndun og erfanleika.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 14. mars kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.
Allir velkomnir.