Frétt
Breyting á breytilegum vöxtum verðtryggðra lána
25. júlí 2016Breytilegir vextir á nýjum verðtryggðum sjóðfélagalánum Frjálsa lífeyrissjóðsins breytast frá og með 15. ágúst nk. Vextir grunnlána, sem miða við 65% veðhlutfall, hækka úr 3,32 í 3,39% og vextir viðbótarlána, sem miða við 65%-75% veðhlutfall, hækka úr 3,97% í 4,04%.
Hækkunin gildir einnig um þau verðtryggðu lán með breytilegum vöxtum sem þegar hafa verið tekin og kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.