Frétt
Framboð til stjórnar á ársfundi
20. maí 2016Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 19. maí sl. Á ársfundinum 26. maí nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:
- Anna Sigríður Halldórsdóttir, hagfræðingur. Sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
- Ásgeir Thoroddsen lögfræðingur. Lögmaður og stjórnarformaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
- Ingvi Þór Georgsson, viðskiptafræðingur og MSc í Alþjóðaviðskiptum. Starfsmaður í upplýsinga- og kynningarmálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Tveir skiluðu inn framboðum í varastjórn og eru þeir því sjálfkjörnir:
- Selma Svavarsdóttir, MBA. Verkefnastjóri á starfsmannasviði Landsvirkjunar.
- Tryggvi Þór Herbertsson, dr. í hagfræði. Fjármála- og rekstrarráðgjafi.