Frétt
Lánareglur rýmkaðar
17. september 2014Stjórn sjóðsins hefur rýmkað lánareglur sjóðsins. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Hámarkslánsfjárhæð hækkar úr 20 milljónum kr. í 40 milljónir. Óbreytt er að hámarksveðhlutfall er 65% af markaðsverðmæti íbúðarhúsnæðis sem lögð er til tryggingar láninu.
- Boðið er upp á lán með jöfnum afborgunum til viðbótar við jafngreiðslulán til að gefa lánþegum kost á að greiða lánin sín hraðar niður.
- Skilyrði til að fá lán er að sjóðfélagi hafi annað hvort greitt iðgjöld í sjóðinn vegna sex síðustu mánaða eða hafa greitt iðgjöld til sjóðsins vegna samtals 36 mánaða.