Frétt
Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn
16. september 2014Á fundinum segir Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, frá uppbyggingu, ávöxtun og þjónustu við sjóðfélaga.
Sérstaklega verður fjallað um þá þætti sem veita sjóðnum sérstöðu, s.s. séreignarmyndun og erfanleika.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 30. september kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.
Allir velkomnir.