Frétt
Niðurstaða ársfundar Frjálsa lífeyrissjóðsins
26. apríl 2013Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn 24. apríl sl. Á fundinum var m.a. kynntur ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2012 þar sem fram kom að fjárfestingarleiðir sjóðsins hefðu skilað 5,4%-14,1% nafnávöxtun en tryggingadeildin 10,5% nafnávöxtun. Hrein eign sjóðsins var um 116,6 milljarðar kr. í lok árs og stækkaði sjóðurinn um 17% á árinu.
Kosning stjórnarmanna
Á fundinum var kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára. Réttkjörin voru þau Ásdís Eva Hannesdóttir og Magnús Pálmi Skúlason. Einnig var kosið um tvo varamenn til eins árs. Réttkjörnar voru þær Anna Sigríður Halldórsdóttir og Selma Svavarsdóttir.
Tillögur um breytingar á samþykktum
Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins voru samþykktar samhljóða.
Stjórnarlaun
Samþykkt var að mánaðarlaun stjórnarmanna yrðu 97.500 kr. og tvöföld til stjórnarformanns.
Deloitte endurskoðandi sjóðsins
Samþykkt var tillaga stjórnar um að Deloitte yrði endurskoðandi sjóðsins.
Fundargerð ársfundar verður birt á vefnum innan fárra daga.