Frétt
Hækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána
12. apríl 2013Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins hækka í 2,87% frá og með 15. apríl.
Vextir lánanna eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti og taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn sjóðsins ákveður, nú 0,6%.
Hækkunin gildir einnig um þau lán sem hafa verið tekin til þessa.