Frétt
Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði
22. nóvember 2012Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði verður þriðjudaginn 27. nóvember kl. 17:30 í Arion banka, Borgartúni 19.
Eftir 55 ára aldur styttist í að einstaklingar geti hafið töku á lífeyrissparnaði sínum. Á fundinum verður fjallað um ýmis atriði sem mikilvægt er að huga að við töku lífeyrissparnaðar:
- Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
- Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
- Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.