Frétt
Góð ávöxtun og tryggingafræðileg staða Frjálsa lífeyrissjóðsins
16. júlí 2012Fjármálaeftirlitið hefur gefið út skýrslu með samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða landsins fyrir árið 2011.
Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni eru tölur yfir hreina raunávöxtun tryggingadeilda lífeyrissjóða. Að meðaltali nam hún um 2,3% hjá íslenskum lífeyrissjóðum árið 2011 en til samanburðar var hrein raunávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins 3,6% á sama tímabili.
Tryggingafræðilega staða Frjálsa lífeyrissjóðsins er einnig ein sú besta í árslok 2011, eða -0,4%, og eru aðeins þrír sjóðir með betri tryggingafræðilega stöðu í árslok.
Margt fleira áhugavert er að finna í skýrslunni en nálgast má skýrsluna sjálfa hér.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
- Eignir íslenskra lífeyrissjóða sem hlutfall af vergri landsframleiðslu voru í árslok 2011 um 137% og var hlutfallið þá orðið hið sama og það var fyrir fall bankanna.
- Heildareignir lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar eru 2.230 milljarðar.
- Hrein raunávöxtun samtrygginga og séreignadeilda lífeyrissjóða miðað við neysluverðsvísitölu var 2,5% árið 2011.
- Séreignarsparnaður í vörslu lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila í árslok 2011 nam 341ma.kr.
- Séreignarsparnaður í heild nam um 15% af heildareignum lífeyriskerfisins í árslok 2011.
- Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði skal vera jafnvægi á milli eigna og skuldbindinga samtryggingadeilda lífeyrissjóða. Samtals voru 21 lífeyrissjóður án ábyrgðar launagreiðenda með neikvæða tryggingafræðilega stöðu í árslok 2011, en aðeins 3 með jákvæða stöðu.
Íslenska lífeyrissjóðakerfið er stórt, sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, í alþjóðlegum samanburði. Sé horft til Evrópu er einungis Holland með hærra hlutfall en á eftir Íslandi kemur svo Sviss og Danmörk er í sjötta sæti hvað þetta varðar. Samtryggingarhluti íslenska lífeyrissjóðakerfisins er um 125% af vergri landsframleiðslu, það danska er um 50% og sænska lífeyrissjóðakerfið er síðan um 10% af vergri landsframleiðslu og í áttunda sætinu.
Lífeyrisgreiðslur hins opinbera, þ.e. almannatryggingar, eru lægra hlutfall af vergri landsframleiðslu á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum og námu þær um 4% árið 2010. Stór ástæða þessa er sú hversu hátt hlutfall lífeyrisgreiðslna á Íslandi kemur frá lífeyrissjóðum landsmanna en ekki frá almannatryggingum. Hlutfall almannatrygginga var næst lægst í Sviss en þar var það yfir 6% og þar á eftir kemur Holland með tæp 7%. Af þessu má sjá að íslenska lífeyriskerfið er mikilvægur þáttur í því velferðarkerfi sem Íslendingar búa við og einnig mikilvægi þeirra fyrir afkomu ríkissjóða í hverju landi fyrir sig.