Frétt

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn þriðjudaginn 29. maí - allir velkomnir

Fræðslufundur um Frjálsa lífeyrissjóðinn þriðjudaginn 29. maí - allir velkomnir

Á fræðslufundinum verður fjallað um uppbyggingu sjóðsins, þjónustu við sjóðfélaga, eignastýringu og ávöxtun. Áhersla verður lögð á þá þætti sem skapa sjóðnum sérstöðu umfram aðra lífeyrissjóði s.s. séreignarmyndun og erfanleika.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn er einn elsti frjálsi lífeyrissjóður landsins, stofnaður árið 1978. Sjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 110 milljarðar að stærð og fjöldi sjóðfélaga er um 43 þúsund. Sjóðurinn er opinn þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða skyldulífeyrissparnað og er jafnframt opinn öllum sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19 þriðjudaginn 29. maí kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í um klukkustund og eru léttar veitingar í boði.

Allir velkomnir.