Frétt
Lækkun á vöxtum lífeyrissjóðslána
16. janúar 2012Verðtryggðir vextir lífeyrissjóðslána Frjálsa lífeyrissjóðsins lækkuðu í 3,27% frá og með 15. janúar 2012.
Vextir lánanna eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti og taka mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF34 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi sem stjórn sjóðsins ákveður, nú 0,6%.
Lækkunin gildir einnig um þau lán sem hafa verið tekin til þessa.